|
Flug til styrktar baráttu við MS sjúkdóminn |
|
miðvikudagur, 01 september 2010 |
Fimmtudaginn 2. september klukkan 12:00 á hádegi munu tveir flugmenn,
Andrei Floroiu og Keith Siilats, ásamt ljósmyndaranum Florian lenda á
Reykjavíkurflugvelli á tveggja hreyfla Cessna 340, N7841Q.
Þeir eru í stuttu stoppi á leið sinni frá New York, Kanada og Grænlandi
og munu svo taka stóran hring í Evrópu meðal annars til Noregs,
Rússlands, Rúmeníu og Spánar áður en þeir halda til baka til New York.
Flugið í heild sinni eru áætlaðir 47 000 kílómetrar og mun taka um tvo
mánuði.
Andrei og Keith ákváðu að leggja af stað í þessa ferð til þess að vekja
athygli og umræðu um MS (Multiple Sclerosis) sjúkdóminn og safna
áheitum. Þeir munu stoppa við hjá MS félögum meðal annars á Íslandi,
Eistlandi, Rúmeníu, Danmörku og Þýskalandi. Þeir munu einnig fljúga
fólki með MS í lyfjameðferð og MS sérfræðingum á ráðstefnur, í
samstarfi við MS félögin í hverju landi fyrir sig, þar sem þörf er á.
Markmið Fly for MS eru að:
1. Snerta líf þeirra sem lifa með MS.
2. Vekja nýjan áheyrendahóp til umhugsunar um MS sjúkdóminn.
3. Sýna að allir sem hafa hugrekki, sköpunagáfu og frumkvæði geta haft áhrif á líf annarra og samfélagið í heild sinni.
4. Veita þeim 1.4 milljónum sem lifa með MS og aðstandendum þeirra í 30 löndum innblástur til þess að láta drauma sína rætast.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ráðstefna um flug og eldgos |
|
þriðjudagur, 17 ágúst 2010 |
|
Flugakademía Keilis hefur boðað saman leiðtoga, sérfræðinga og embættismenn, bæði innan Evrópu sem að utan, til að ræða hvað hefði mátt fara betur og til hvaða aðgerða þarf að grípa. Þetta er tækifæri fyrir evrópska hagsmunaaðila að ræða við og bera saman vinnuferli við samstarfsmenn frá Bandaríkjunum og Asíu. Ráðstefnan um áhrif Eyjafjallajökuls á flug mun fara fram í Ásbrú dagana 15.-16.september. |
|
Lesa meira...
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 2 af 12 |